Gengisvísitalan var 154 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,7% frá opnun í morgun en aftur á móti styrkst um 0,2%frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 155,1 stig en var fyrir helgi 154,4 stig.

Krónan veiktist nokkuð við opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og hafði á um kl. 10 í morgun veikst um allt að 1,7%. Nokkuð dró úr þeirri veikingu þegar líða fór á daginn eins og sjá má. Krónan hefur nú styrkst um 4,3% síðustu fimm daga sé miðað við lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 76,8 krónum, Evran í 121 krónu og Sterlingspundið í 151,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,3 krónum, japanskt jen í 0,72 krónum og danska krónan í 16,1 krónu.