Gengisvísitalan var 154 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,7% frá opnun markaða í morgun en 0,8% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 154 stig en var í gær 152,7 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119,7 krónum, Bandaríkjadalur í 76,9 krónum og Sterlingspundið í 151,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73,5 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum