Gengisvísitalan er nú 157,7 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og veiktist krónan því um 0,8% í dag en stóð í stað frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 156,8 stig en var 157,7 stig í gær.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79,5 krónum, Evran í 122,6 krónum og Sterlingspundið í 154,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,1 krónu, japanskt jen í 0,7 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.