Gengisvísitalan var 160,6 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 0,8% frá opnun í morgun en 0,1% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 160,9 stig en var í gær 160,4 stig.

Krónan styrktist um 2,1% í gær en hóf að veikjast við opnun markaða í morgun og hafði rétt fyrir hádegi í dag veikst um 1,2% þannig að nokkuð hefur dregið úr veikingunni seinni hluta dags í dag.

Krónan hefur nú styrkst um 5,2% á einni viku sé miðað við markaðsgengi nú og opinbert gengi s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 79,4 krónum, Evran í 125,5 krónum og Sterlingspundið í 158,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 78,1 krónu, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,8 krónum.