Gengisvísitalan er nú 149,5 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst 1% frá opnun markaða í morgun en 1,1% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 148,3 stig var í gær 147,9 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 115,9 krónum, Bandaríkjadalur í 74,6 krónum og Sterlingspundið í 147,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,2 krónum og japanskt jen í 0,71 krónu.