Gengisvísitalan var 158,7 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,3% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 0,9% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því á föstudag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 157,1 stig en var fyrir helgi 157,3 stig.

Krónan hefur nú veikst um 0,6% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,4 krónum, Evran í 121,8 krónum og Sterlingspundið í 153 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,3 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.