Gengisvísitalan var 153,1 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,3% frá opnun markaða í morgun en 1,7% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 153,3 stig var í gær 150,5 stig.

Krónan hefur því veikst um 4,5% milli vikna sé miðað við gengi á mörkuðum í dag og opinbert gengi s.l. þriðjudag.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 119 krónum, Bandaríkjadalur í 77 krónum og Sterlingspundið í 151,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73,7 krónum og japanskt jen í 0,73 krónum