Gengisvísitalan var 149 við lok gjaldeyrismarkaða á föstudag samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hafði krónan því styrkst 0,3% frá opnun markaða þann daginn en aftur á móti veikst um 0,5% frá opinberu gengi Seðlabankans deginum áður.

Krónan veiktist um 1% á mörkuðum í fimmtudag og útskýrir það þennan mismun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var á föstudag 149,2 stig.

Krónan veiktist því um 2,1% í vikunni sem leið sé miðað við lokagengi á mörkuðum á föstudag og opinbert gengi s.l. mánudag.

Miðað við sömu forsendur hefur krónan styrkst um 0,5% frá mánaðarmótum en veiking hennar frá áramótum nemur 18,5%.

Samkvæmt vef Landsbankans stóð Evran í 116 krónum, Bandaríkjadalur í 74,5 krónum og Sterlingspundið í 147,5 krónum við lok markaða fyrir helgi.

Þá stóð svissneskur franki í 71,5 krónum og japanskt jen í 0,71 krónu.