Gengisvísitalan var 147,8 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því styrkst um 1% frá opnun markaða í morgun en 1,3% frá opinberu gengi Seðlabankans í gær.

Lítil hreyfing var á krónunni í gær og fram eftir degi í dag en undir lok dags veiktist hún sem fyrr segir.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt gengi Seðlabankans. Opinbert gengi Seðlabankans var í morgun 146,1 stig var í gær 145,9 stig.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur Evran nú í 115,3 krónum, Bandaríkjadalur í 73,3 krónum og Sterlingspundið í 144,8 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 71,3 krónum og japanskt jen í 0,70 krónum