Gengisvísitalan var 176,6 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 2,7% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 2% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því fyrir helgi.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð en miðað við lokagildi á mörkuðum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Krónan styrktist um rúm 2% á föstudag eftir að hafa veikst alla vikuna og hélt áfram að styrkjast við opnun í morgun.

Krónan hafði um tíma styrkst um 1,5% í morgun en um klukkan hálfþrjú í dag tók hún hins vegar að veikjast mjög snögglega og tók algjöran viðsnúning og hafði eins og fyrr segir veikst um 2,7% við lok gjaldeyrismarkaða.

Krónan hefur nú veikst um 3,8% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. mánudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 92,3 krónum, Evran í 135,5 krónum og Sterlingspundið í 170,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 85,2 krónum, japanskt jen í 0,87 krónum og danska krónan í 18,2 krónum.