Krónubréf að nafnvirði 15 milljarðar króana að viðbættum vöxtum falla á gjalddaga í þessari viku.

5 milljarða króna útgáfa Toyota gjaldfellur á föstudaginn sem og 10 milljarða króna útgáfa Þróunarbanka Ameríkuríkja (e. Inter American Development bank).

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

Greining Glitnis segir að hingað til hefur þeim krónubréfum sem fallið hafa á gjalddaga oftast nær verið mætt með nýrri útgáfu í grennd við gjalddagann.

„Ólíklegt er hinsvegar að það gerist nú þar sem væntur ávinningur af útgáfu krónubréfa hefur dregist verulega saman í kjölfar þess að helsti drifkraftur útgáfunnar, mikill vaxtamunur hefur þurrkast út á gjaldmiðlaskiptamarkaði. Lítið framboð á erlendu lánsfé hefur valdið því að vaxtamunur við útlönd á þessum markaði er orðinn lítill sem enginn og raunar neikvæður á stystu samningunum. Á meðan þetta ástand varir má búast við því að lítið verði um nýjar útgáfur krónubréfa en engin krónubréf hafa verið gefin út hér á landi síðan í lok febrúar,“ segir Greining Glitnis.

Lítið um gjalddaga í sumar

Þá kemur einnig fram að frá því að vaxtamunurinn strokaðist út á gjaldmiðlaskiptamarkaði í byrjun ársfjórðungsins hefur verið lítið um stóra gjalddaga krónubréfa en alls gjaldfalla 33 milljarðar króna á þessum ársfjórðungi.

Tæplega helmingur þeirrar upphæðar, 15 milljarðar króna að viðbættum vöxtum, gjaldfellur á föstudag sem fyrr segir.

„Við þær aðstæður sem nú ríkja á gjaldmiðlaskiptamarkaði er ekki hægt að framlengja bréfunum og má því segja að það hafi verið krónunni til happs að engir stórir gjalddagar krónubréfa hafi verið frá því að vandræðanna fór að gæta og útflæði gjaldeyris af þeim sökum því lítið,“ segir Greining Glitnis í Morgunkorni.