Krónubréf að nafnvirði 5 milljarðar króna sem KfW gaf út fyrir tveimur árum síðan falla á gjalddaga í dag að viðbættum vöxtum.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

Þar segir að þetta sé síðasti gjalddagi septembermánaðar en alls hafa krónubréf að nafnvirði 27,5 milljarðar króna auk vaxta fallið á gjalddaga í mánuðinum að deginum í dag meðtöldum.

Þá hefur ein krónubréfaútgáfa litið dagsins ljós í september er hollenski bankinn Rabobank gaf út krónubréf að nafnvirði 13 milljarðar króna til eins árs í byrjun mánaðarins.

Greining Glitnis segir heildarútistandandi krónubréf nema nú tæplega 304 milljörðum króna og hefur staðan ekki verið minni frá því í desember 2006.

Hæst var staðan í ágúst á síðasta ári þegar heildarútistandandi krónubréf námu um 443 milljörðum króna eða um þriðjungi af landsframleiðslu síðasta árs.

Í Morgunkorni segir að á síðasta fjórðungi ársins falla 59 milljarðar króna á gjalddaga auk vaxta, þar af eru krónubréf að nafnvirði 45 milljarðar króna á gjalddaga í október.

Þá eru um 129 milljarðar króna á gjalddaga á 1. fjórðungi næsta árs og mun því draga hratt úr krónubréfastöðunni á komandi mánuðum komi ný útgáfa krónubréfa ekki til.