Þýski nýsköpunarsjóðurinn KFW bætti í dag þremur milljörðum króna við krónubréfaútgáfu sína. KfW er einn stærsti útgefandi krónubréfa og nemur útistandandi útgáfa sjóðsins 90 milljörðum króna. Um er að ræða aðra krónubréfaútgáfu ársins en í gær gaf ABN Amro út krónubréf fyrir þrjá milljarða.