Greiningadeild Landsbankans segir frá því í Vegvísi að viðskipti tengd yfirtöku Exista á Skiptum, móðurfélagi Símans, þýddu að Kaupþing eignast 9,56% hlut í Exista sem er jafnframt stærsti hluthafi Kaupþings.

Eignahlutur í Exista er langstærsta einstaka eign SPRON en félagið á stóran hlut í Exista, bæði í gegnum tæplega 48,4% eignarhlut sinn í Kistu ehf. (8,9%) og í eigin nafni (3,0%).