Herferðin „Við erum öll í sama liði“ sem Icelandair framleiddi í samstarfi við KSÍ vann „Creativity and innovation award“ á KISS verðlaunahátíðinni sem evrópska knattspyrnusambandið UEFA stendur fyrir. Frá þessu er greint á vef KSÍ .

Í niðurstöðu dómnefndar kemur fram að auglýsingin sýni gott samstarf á milli Icelandair og KSÍ. Leikstjóri auglýsingarinnar er Hannes Þór Halldórsson, en hann er markvörður íslenska landsliðsins. Það var Saga Film sem hafði umsjón með gerð auglýsingarinnar ásamt Íslensku auglýsingastofunni og markaðsdeild Icelandair.

Verðlaunin voru afhent í Cascais í Portúgal og tóku Hilmar Þór Guðmundsson og Ómar Smárason frá KSÍ við verðlaununum. Auglýsinguna má sjá hér: