KSÍ og N1 skrifuðu undir samning um hæfileikamótun ungs knattspyrnufólks á laugardaginn í Kórnum í Kópavogi. Um er að ræða verkefni sem ætlað er yngri iðkendum knattspyrnu af báðum kynjum til að auka áhuga á íþróttinni og efla grasrótarstarf í knattspyrnu um land allt.

Knattspyrnulið um allt land munu fá heimsóknir frá þjálfurum KSÍ, sem munu meta getu leikmanna á aldrinum þrettán til fjórtán ára í þeirri von að finna framtíðarleikmenn íslenska landsliðsins. Tilgangurinn er einnig að fylgjast betur með efnilegum leikmönnum um land allt.

„Starfsemi N1 teygir sig um allt land og höfum við reynt að leggja okkar að mörkum í uppbyggingu ungmenna- og íþróttastarfs í byggðum landsins. Það er því okkur mikið ánægjuefni að koma að hæfileikamótun með KSÍ með það að markmiði að finna landsliðsmenn og -konur framtíðarinnar," segir Halldór Harðarsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá N1.