Verðlagsnefnd búvara hefur tekið sameiginlega ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, hækki 1. nóvember nk. um 10,39%.
Frá sama tíma hækkar afurðastöðvaverð til bænda um 7,13 kr. á lítra mjólkur.
Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur um kr. 5,90 á hvern lítra.
Þetta kemur fram á vef Bændablaðsins.
Þar kemur fram að við þessa breytingu má gera ráð fyrir að einn lítri af nýmjólk hækki um 10 kr.
Þá eru ástæður þessara verðhækkana sagðar hækkanir á aðföngum í mjólkuriðnaði og búvöruframleiðslu.