Héraðsdómur kveður á morgun upp úrskurð varðandi frávísunarkröfur í máli Glitnis gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Lárusi Welding, Skarphéðni Berg Steinarssyni og fleiri fyrrverandi stjórnendum og eigendum bankans. Málið snýst um 15 milljarða króna víkjandi lán sem Glitnir veitti Baugi Group í desember 2007 og krefst bankinn þess að stefndu greiði 6,5 milljarða króna í skaðabætur.

Þann áttunda þessa mánaðar var tekist á um frávísunarkröfur sem sjö af níu hinna stefndu settu fram. Fyrir dómi sagði lögmaður Jóns Ásgeirs furðulegt að halda því fram að hann hefði haft einhvers konar boðvald yfir Glitni. Einungis þrír af níu stjórnarmönnum Glitnis hafi verið fulltrúar FL Group í stjórninni. Málið byggist m.a. á tölvupósti sem Jón Ásgeir sendi Lárusi Welding, þáverandi forstjóra Glitnis, sem innihélt drög að lánasamningnum.

Úrskurðurinn verður kveðinn upp klukkan þrjú á morgun.