Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavik Global Forum - Women Leaders, hófst í morgun í Hörpu og taka um 500 kvenleiðtogar frá yfir 100 löndum þátt í ár. Heimsþingið er nú haldið í fimmta sinn. Women Political Leaders (WPL) standa að Heimsþinginu í samstarfi við ríkisstjórn Íslands og Alþingi með stuðningi fjölmargra íslenskra og alþjóðlegra samstarfsaðila. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er sérstakur verndari Heimsþings kvenleiðtoga.

„Yfirskrift Heimsþingins í ár er Power, Together for Partnership sem vísar til mikilvægis samstarfs og samstöðu um jafnréttismál. Væntanlegar eru kvenleiðtogar úr stjórnmálum, viðskiptum, fjölmiðlum, vísindum og tæknigeiranum og er tilgangurinn að gefa þátttakendum tækifæri til að ræða og skiptast á hugmyndum um hvernig kvenleiðtogar geti beitt sér fyrir betra samfélagi, auknu jafnrétti milli kynja og valdeflingu kvenna í sem víðustu samhengi,“ segir í fréttatilkynningu um Heimsþingið.

Meðal þátttakenda á Heimsþingi kvenleiðtoga eru Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands, Bidhya Devi Bhandari forseti Nepal, Eliza Reid forsetafrú, Sviatlana Tsikhanouskaya leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Hvíta-Rússlandi, Sima Sami Bahous, framkvæmdastjóri UN Women, Dalia Grybauskaite fyrrverandi forseti Litháen, Margarita Robles Fernandez varnarmálaráðherra Spánar, Marie-Louise Coleiro Preca fyrrverandi forseti Möltu, Ann Cairns, stjórnarformaður Mastercard, ásamt yfir 100 þingkonum alls staðar að úr heiminum og fjölmörgum öflugum kvenleiðtogum af yngri kynslóðinni.

Á heimsþinginu veitir stjórn Women Political Leaders sérstakar viðurkenningar til aðila sem hafa náð miklum árangri í jafnréttismálum víðsvegar um heiminn, auk þess sem kynntar verða niðurstöður Reykjavik Index for Leadership 2022 í samstarfi við rannsóknarfyrirtækið Kantar, sem mælir viðhorf almennings um allan heim til karla og kvenna sem leiðtoga.

„Það er afar ánægjulegt að taka á móti svo stórum hópi kvenleiðtoga í Hörpu og fá tækifæri eitt árið enn til að kynna árangur Íslands í jafnréttismálum. Ísland hefur í þrettán ár mælst efst landa þegar kemur að jafnrétti og alþjóðlega er litið til okkar sem fyrirmyndar. Heimsþing kvenleiðtoga hefur fest sig í sessi sem vettvangur umræðu fyrir alþjóðlega kvenleiðtoga og við vitum og finnum að viðburðinn skiptir máli og hefur þegar skilað árangri,“ er haft eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, stjórnarformanni og öðrum stofnenda Heimsþings kvenleiðtoga.

„Það er mikilvægt að kvenleiðtogar um allan heim og úr öllum geirum taki höndum saman um mikilvæg úrlausnarefni eins og umhverfismál, stríðsátök og aðrar áskoranir samtímans. Það er WPL mikill heiður að eiga í svo árangursríku og ánægjulegu samstarfi við ríkisstjórn Íslands og Alþingi í fimmta sinn. Fleiri konur í forystu og jafnrétti kynjanna þolir enga bið. Samtalið á Heimsþingi kvenleiðtoga hefur raunveruleg áhrif,“ segir Silvana Koch-Mehrin, forseti Women Political Leaders, sem ásamt Hönnu Birnu stofnaði Heimsþings kvenleiðtoga.

Nálgast má beint streymi frá Heimsþingi kvenleiðtoga hér.