Kvika hefur undirritað viljayfirlýsingu um kaup á 80% hlut í Netgíró en fyrir á bankinn um 20% hlut í félaginu og verður því eini eigandi þess ef kaupin ná fram að ganga.

Kaup á Netgíró eru í samræmi við stefnu bankans að nýta tæknilausnir til þess að nútímavæða fjármálaþjónustu. Netgíró hefur lagt áherslu á að þróa lánshæfismöt ásamt því að bjóða raðgreiðslur með einföldum hætti. Áður hefur bankinn sett fjártækniþjónustuna Auði á laggirnar með góðum árangri.

Í tilkynningunni segir að Kvika hafi átt farsælt samstarf við Netgíró á undanförnum árum, meðal annars varðandi fjármögnun á kröfusafni félagsins. Kaupin gera bankanum kleift að efla enn frekar samstarfið við Netgíró sem leiðir til aukinnar skilvirkni og hagræðingar hjá báðum aðilum. Netgíró er nú á tæplega 3.000 sölustöðum á landinu og yfir 68.000 einstaklingar eru í viðskiptum við fyrirtækið.

Viljayfirlýsingin er gerð með ýmsum fyrirvörum, svo sem um samþykki stjórnar Kviku, niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki eftirlitsaðila. Áætlað er að ganga frá kaupsamningi innan þriggja mánaða.

Kaupin hafa ekki áhrif á afkomuspá bankans fyrir árið í ár en stefnt er að því að kaupin hafi jákvæð áhrif á afkomu bankans til lengri tíma.

„Við sjáum tækifæri í Netgíró til framtíðar enda er félagið með háa markaðshlutdeild og hjá því starfa öflugir og reynslumiklir starfsmenn. Væntanleg kaup bankans á Netgíró falla vel að stefnu bankans um þróun fjármálaþjónstu byggða á hagkvæmum tæknilausnum. Með sterka innviði og fjárhagslegan styrk bankans á bakvið sig teljum við félagið vera í góðri stöðu til að sækja fram á næstu misserum,“ er haft eftir Marinó Erni Tryggvasyni, forstjóra Kviku.

„Viljayfirlýsingin er mikið gleðiefni og um leið staðfesting á því sem við hjá Netgíró höfum unnið að frá stofnun félagsins. Afburða starfsfólk, skýr framtíðarsýn og mikil vinna hefur skapað fyrirtækinu þann sess sem það nú skipar. Við vitum að framundan eru spennandi tímar og mikil tækifæri til vaxtar, Skorri Rafn Rafnsson, stjórnarformaður Alva Holding ehf., móðurfyrirtækis Netgíró,“ segir Skorri Rafn Rafnsson, stjórnarformaður Alva Holding ehf., móðurfyrirtækis Netgíró.

Samkvæmt Fyrirtækjaskrá á Skorri Rafn 80% eignarhlut í Netgíró.