Stjórn Kviku banka hf. samþykkti í dag, 9. ágúst 2017, að hækka hlutafé Kviku í A-flokki um kr. 300.000.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kviku.

Ákvörðun stjórnar um hækkun hlutafjár félagsins byggir á heimild hluthafafundar sem haldinn var 14. júlí 2017, þar sem stjórn var heimilað að auka hlutafé félagsins í A-flokki um allt að kr. 400.000.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta eins og Viðskiptablaðið greindi frá.

Mun andvirði hlutafjárhækkunarinnar verða nýtt til greiðslu kaupverðs alls hlutafjár Virðingar og Öldu sjóða . Miðast umfang hækkunarinnar við að kaupin hafi ekki teljandi áhrif á eiginfjárhlutfall Kviku.

Samkvæmt tilkynningunni munu hluthafa Kviku í A-flokki eiga forgangsrétt til áskriftar að nýjum hlutum nær réttur hluthafa til að nýta sér forgangsrétt sinn til 24. ágúst næstkomandi. Áætlað er að áskrift vegna nýrra hluta ljúki ekki síðar en þann 18. september 2017.