Gengi hlutabréfa í Kviku banka á First North markaðnum hefur hækkað um 4,03% það sem af er degi. Veltan nemur 11 milljónum króna.

Í morgun var tilkynnt að Kvika hyggðist kaupa sjóðastýringarfyrirtækið GAMMA fyrir 3,8 milljarða. Kaupin eru háð ýmsum skilyrðum eins og til að mynda áreiðanleikakönnunum og samþykki eftirlitsaðila.

Í öðrum viðskiptum hefur hlutabréfaverð í Icelandair Group hækkað um 3,33% í 624 milljóna króna viðskiptum. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,31%.