Hagnaður Kviku banka hf. árið 2016 1.928 milljónir króna og arðsemi eiginfjár var 34,7%. Hreinar rekstrartekjur Kviku námu 5.318 milljónum króna. Þetta kemur fram í afkomutilkynningu Kviku fyrir árið 2016. Hagnaður félagsins jókst talsvert milli ára, en félagið tapaði 483 milljónum árið 2015. Það ár litaði afskrift skatteignar að upphæð 880 milljónum króna það uppgjör. Sú afskrift er bókhaldsleg hreingerning og hafði ekki áhrif á sjóðsstreymi.

Hreinar þóknanatekjur námu 2.840 milljónum króna á árinu 2016. „Vöxtur var í eignastýringu á árinu og námu eignir í stýringu 121 milljarði króna í lok árs 2016. Þóknanatekjur fyrirtækjasviðs jukust umtalsvert milli ára í kjölfar aukinna umsvifa og breyttra áherslna í útlánastarfsemi. Markaðsviðskipti bankans héldu sterkri stöðu sinni og umtalsverður vöxtur var í gjaldeyrismiðlun. Fyrirtækjaráðgjöf lauk stórum verkefnum á árinu, tengdum kaupum og sölu fyrirtækja og ráðgjafar á sviði innviða,“ segir í tilkynningunni.

Fjárfestingatekjur námu 1.283 milljónum króna á árinu. Vaxtatekjur af skuldabréfaeign bankans og hagnaðarhlutdeild fyrirtækjasviðs skilaði ríflega fjórðungi fjárfestingatekna ársins. Afkoma af hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum í sjóðum nam 484 milljónum króna eða 12,9% ávöxtun af meðalstöðu ársins. Hreinar vaxtatekjur bankans voru 1.064 milljónir króna á árinu og vaxtamunur útlána 3,8%.

Rekstrarkostnaður félagsins nam 3.219 milljónum króna á árinu 2016. „Rekstrarkostnaður reglulegrar starfsemi lækkaði í takt við áætlun og var 14% lægri á árinu 2016 miðað við mánaðarlegan rekstrarkostnað á seinni helmingi árs 2015,“ segir einnig í tilkynningunni.

Eiginfjárstaðan sterk

Í lok árs 2016 námu heildareignir Kviku 59.563 milljónum króna samanborið við 61.614 milljónir króna í lok árs 2015 og nemur lækkunin 3% á tímabilinu. Útlán til viðskiptavina jukust á árinu og námu 26 milljörðum króna í lok árs 2016. Innlán frá viðskiptavinum námu 32.479 milljónum króna í árslok 2016 samanborið við 30.544 milljónir króna árið 2015.

Eigið fé Kviku í árslok nam 7.348 milljónum króna og jókst úr 6.293 milljónum í árslok 2015, þrátt fyrir lækkun hlutafjár að fjárhæð 1.000 milljónir króna á fyrri árshelmingi 2016. Eiginfjárhlutfall bankans í lok desember var 20,6% samanborið við 23,5% í árslok 2015. „Eiginfjárstaða bankans er sterk og eiginfjárhlutfall vel umfram kröfur eftirlitsaðila,“ er tekið fram í tilkynningunni.

Hefur náð sérstöðu á íslenskum fjármálamarkaði

Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku, segir við tilefnið: „Við erum stolt af þeim frábæra árangri sem náðst hefur í stefnulegri uppbyggingu Kviku, eina sérhæfða fjárfestingabanka Íslands. Að baki er fyrsta heila rekstrarár Kviku og afkoma ársins gefur okkur góðan byr undir báða vængi. Hagnaður ársins eftir skatta nam tæpum tveimur milljörðum króna og arðsemi eigin fjár var 34,7%.“

„Kvika hefur sérstöðu á íslenskum fjármálamarkaði og eftirspurn er mikil eftir sérhæfðri þjónustu okkar. Framtíðin er björt fyrir eina sjálfstæða fjárfestingabanka landsins.

Framúrskarandi árangur starfsfólks Kviku og fjárhagslegur styrkur Kviku grundvallast á skýrri framtíðarsýn og einbeittri stefnulegri áætlun bankans. Sterkur grunnur og vönduð vinnubrögð gerir okkur fær um að nýta bestu tækifærin til áframhaldandi sóknar, öllum hagaðilum til heilla,“ bætir hann við.