Kvika banki hefur keypt allt hlutafé í Aur. Fyrir átti Nova rúmlega helmingshlut í Aur og aðir hluthafar voru meðal annars Borgun, Social ehf. og Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Aur.

Í tilkynningu segir að Aur hafi verið stofnað árið 2015 sem einföld og fljótleg leið til að millifæra peninga og hefur á skömmum tíma byggt upp stóran hóp viðskiptavina. Mm síðustu mánaðamót voru virkir notendur Aur appsins um 90 þúsund.

„Kaupin á Aur eru mikilvægt skref í þeirri vegferð Kviku að nýta tæknilausnir til þess að nútímavæða fjármálaþjónustu. Gert er ráð fyrir því að Aur, ásamt Netgíró og fjártækniþjónustunni Auði muni gegna lykilhlutverki í stafrænni fjármálaþjónustu bankans í framtíðinni,“ segir í tilkynningunni frá Kviku. Kaupin eru þó sögð hafa óveruleg áhrif á afkomu ársins.

„Kvika er í einstakri stöðu. Aur er með mikla markaðshlutdeild og býr yfir áhugaverðum tæknilausnum. Með þessum kaupum á Aur eykst enn frekar geta félagsins til þess að keppa við önnur fjármálafyrirtæki. Það eru spennandi tímar framundan,“ segir Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku banka.

„Það er mjög spennandi að fá að taka þátt í vegferð Kviku í fjártækniþjónustu. Markmið bankans er að nútímavæða og einfalda fjármálaþjónustu – sem er einmitt það sem Aur snýst um. Við teljum okkur falla mjög vel að þessari stefnu. Hartnær fjórði hver landsmaður er nú virkur notandi hjá Aur sem segir okkur að það er krafa um einfaldari og betri fjármálalausnir. Sem hluti af öflugri samstæðu Kviku mun Aur teymið ná að skapa ný og áhugaverð tækifæri fyrir sína notendur,“ segir Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Aurs.