Kvika banki kaupir sjálft helming nýs skuldabréfs Upphafs fasteignafélags en stefnt er að því að gefa út milljarðs skuldabréf jafnvel strax í dag að því er Fréttablaðið greinir frá.
Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað ítarlega um hafa skuldabréfaeigendur fyrirtækisins, sem er í eigu sjóðsins Gamma: Novus, samþykkt skilmálabreytingar á bréfunum sem til að mynda lengja í bréfunum og lækka vextina um ríflega helming, en vextirnir voru á bilinu 15-16,5% áður.
Þurfti þess við eftir að kom í ljós að verkefni voru komin skemmra á veg og höfðu verið dýrari en ætlunin var, en félagið skuldaði 1,1 milljarð á síðasta ári.
Þá hefur náðst samkomulag við helstu skuldabréfaeigendur Upphafs, um að leggja til hina 500 milljónirnar, en meðal stærstu eigenda bréfa félagsins er fjárfestingarfélagið Stoðir, TM og félag í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur aðaleigenda Ísfélagsins í Vestmannaeyjum.
Bæði TM og Sjóvá gáfu út afkomuviðvörun vegna félagsins á sínum tíma og sagði Sigurður Viðarsson forstjóri TM það „með ólíkindum að menn hafi klúðrað þessu“. Nýja skuldabréfið mun bera 12% vexti, ekki 6% eins og gömlu bera nú eftir breytingar, sem og þau verða framar í kröfuröðinni.
Í síðustu viku bárust sjóðsfélögum í Novus þær fréttir að við endurmat eigna sjóðsins væri eigið fé þess orðnar 42 milljónir króna, en þremur mánuðum áður hafði það verið metið á 3,9 milljarða. Lækkaði samhliða gengi sjóðsins sem fór hæst í 250 í árslok 2017 niður í 2, en það bráðabirgðagengi miðast við að takist að bjarga félaginu með viðbótarfjármagni.
Nú er félagið með um 280 íbúðir í framkvæmdum en áætluð verklok eru nú áætluð í lok næsta árs, ef viðbótarfjármagn fæst.
Hér má lesa frekari fréttir um málefni fjárfestingarsjóða Gamma, það er Anglia, Novus og Upphafs:
- 8. október 2019 - Samþykktu lækkun vaxta í 6%
- 8. október 2019 - Segir tap slitið úr samhengi
- 5. október 2019 - Einungis farið í eitt verkefni
- 3. október 2019 - Eitraður kokteill
- 2. október 2019 - Bréf Kviku lækka um 6,25%
- 2. október 2019 - Grunur um óeðlilegar greiðslur
- 1. október 2019 - Upphaf tapaði 1,1 milljarði
- 30. september 2019 - Bréf TM og Sjóvá lækka
- 30. september 2019 - Gamma rýrir afkomu tryggingafélaganna
- 30. september 2019 - „Með ólíkindum að menn hafi klúðrað þessu“
- 30. september 2019 - Viðsnúningur TM allt að 490 milljónir