Kvika banki hf. hefur lokið útboði á sex mánaða víxlum í nýjum flokki, KVB 17 0921. Alls bárust tilboð upp á 2.670 milljónir króna og í kjölfarið var tilboðum tekið fyrir 2.000 milljónir króna. Þetta kemur fram í frétt Kviku um málið.

Víxlarnir voru seldir á 5,45% flötum vöxtum og gert er ráð fyrir að þeir verða teknir til viðskipta á Kauphöll Nasdaq Iceland í næstu viku.

Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku, segir við tilefnið: „Fjármögnun Kviku með víxlaútgáfum hefur gengið vel og við erum ánægð með viðtökur fjárfesta. Áhuginn og sífellt betri kjör eru staðfesting á trausti til Kviku.“