Stjórnir Kviku banka hf. og Virðingar hf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um undirbúning samruna félaganna undir nafni Kviku. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Sameinað félag yrði með 220 milljarða króna í stýringu. Á næstu vikum verður unnið að samkomulagi um helstu skilmála fyrir samrunanum.

Hér má sjá tilkynninguna í heild sinni;

„Í aðdraganda sameiningar verður eigið fé Kviku lækkað um 600 m.kr. og lækkunin greidd til hluthafa bankans. Hluthafar Kviku munu eftir samruna eiga 70% hlut í sameinuðu félagi og hluthafar Virðingar 30%.

Með sameiningu Kviku og Virðingar yrði til öflugt fjármálafyrirtæki sem væri leiðandi á fjárfestingabankamarkaði. Sameinað félag yrði einn stærsti aðili í eignastýringu á Íslandi með um 220 milljarða króna í stýringu og fjölda sjóða í rekstri s.s. verðbréfasjóði, fjárfestingasjóði, framtakssjóði, fasteignasjóði, veðskuldabréfasjóði og ýmsa fagfjárfestasjóði. Auk þess myndi sameinað félag ráða yfir öflugum markaðsviðskiptum, fyrirtækjaráðgjöf, sérhæfðri lánastarfsemi og einkabankaþjónustu.

Á næstu vikum verður unnið að samkomulagi um helstu skilmála fyrir samrunanum, þ.m.t. um forsendur, gerð áreiðanleikakannana, endanlega samningsgerð og aðgerðar- og tímaáætlun. Ef sameining félaganna nær fram að ganga er stefnt að því að hún taki gildi um mitt næsta ár,“ segir í tilkynningunni.