Fjármálaeftirlitið samþykkti þann 10. nóvember síðastliðinn, föstudag, endanlega samruna Kviku banka hf, við Virðingu hf. á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki.

Samkvæmt tilkynningu Fjármálaeftirlitsins sem birtist á vef stofnunarinnar í gær tekur Kvika við öllum réttindum og skyldum Virðingar en sameiningin er undir nafni Kviku banka. Tekur hann gildi næstkomandi laugardag 18. nóvember.