Stjórn Kviku banka hf. samþykkti á fundi sínum þann 2. júlí 2018 að stefna að skráningu hlutabréfa bankans á Aðalmarkað Nasdaq Iceland á næstu 6-12 mánuðum.

Hlutabréf Kviku voru tekin til viðskipta á Nasdaq First North Iceland þann 16. mars 2018.

„Skráning á Aðalmarkað Nasdaq Iceland er áhugavert skref fyrir bankann og eðlilegt framhald eftir skráningu á First North fyrr á þessu ári. Hlutabréf Kviku eru í dag hluti af First North 25 vísitölunni sem inniheldur stærstu félög Norðurlanda sem skráð eru á First North markaðinn, mælt út frá virði hlutafjár og veltu í viðskiptum." Er haft eftir Ármanni Þorvaldssyni, forstjóra Kviku banka.