Metsölulisti bókaverslana ber þess merki að halla tekur á sumarið og haustið með tilheyrandi inniveru er handan við hornið.

Efst á lista yfir metsölubækur síðustu viku er ljósmyndabókin Iceland Small World eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Í öðru sæti er bókin Húfuprjón, 57 uppskriftir á kríli, krakka og konur. Þriðja sætið vermir svo bókin Fantasíur. Bókin inniheldur kynlífsóra kvenna sem Hildur Sverrisdóttir safnaði saman í bók.

Aðrar bækur á listanum eru bækur um matreiðslu og orðabækur.

Hér er listinn yfir tíu mest seldu bækur síðustu viku.

  1. Iceland Small World
  2. Húfuprjón
  3. Fantasíu
  4. Danskur málfræðilykill
  5. Hin ótrúlega pílagrímsganga
  6. Grillréttir Hagkaups
  7. Dönsk-Íslensk Íslensk-Dönsk Orðabók
  8. Flöskuskeyti frá P
  9. Íslensk-Ensk Ensk-Íslensk Vasaorðabók
  10. Forsetinn er horfinn