Fjallað verður um orkumál á ráðstefnu í London á föstudaginn á vegum Bresk-íslenska viðskiptaráðsins og Bloomberg. Þar verður meðal annars fjallað um sæstreng, olíuleit og gagnaver. Mikill áhugi er fyrir ráðstefnunni og hafa fjölmargir skráð sig.

VB Sjónvarp ræddi við Kristínu S. Hjálmtýsdóttur, framkvæmdastjóra Bresk-íslenska viðskiptaráðsins.