Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) boða til kynningarfundar í dag, mánudaginn 2. maí um umboðsmann skuldabréfaeigenda með áherslu á fyrirkomulagið í Noregi (Norsk Tillitsmann). Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, fundarsal G kl. 15 - 16. Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins .

Þar segir að SFF settu á síðasta ári á stofn sérstakan verðbréfahóp sem skilaði þann 20. janúar 2011 af sér skýrslu með tillögum til úrbóta á ýmsu er snýr að verðbréfamarkaðnum. Ein af þeim tillögum hópsins sem stjórn SFF hefur forgangsraðað er að skoða möguleikann á að koma upp umboðsmanni skuldabréfa hér á landi til að  að auka skilvirkni og traust á skuldabréfamarkaðinum.  Fundinum í dag er ætlað að gefa þeim hérlendu aðilum sem málið varðar innsýn í norska fyrirkomulagið og leggja þannig grunn að næstu skrefum.

„Markaður fyrir fyrirtækjaskuldabréf hér á landi tók dýfu eftir efnahagshrunið í október 2008.  Skuldabréfamarkaðurinn er þrátt fyrir það líflegur, þótt enn sé úrval bréfa tiltölulega einhæft. Ekki er ástæða til að ætla annað en að það muni breytast smám saman þegar efnahagslífið réttir úr kútnum, fjármálafyrirtæki sækja í auknum mæli fjármagn á skuldabréfamarkað og rekstur atvinnufyrirtækja braggast.

Öflugur skuldabréfamarkaður getur leikið stórt hluverk við endurreisn íslensks atvinnulífs og því er mikilvægt að efla traust milli útgefenda og fjárfesta til að auka tiltrú á markaði. Ætla verður að í framtíðinni muni fagfjárfestar gera kröfur um að skilmálar skuldabréfa verði strangari en almennt tíðkaðist fyrir efnahagshrunið. Á sama tíma þarf að tryggja að slíkir skilmálar innihaldi nægilegan sveigjanleika fyrir útgefendur þannig að þeir geti lagað sig að aðstæðum í efnahagslífinu hverju sinni,“ segir á vef SA.