Íslandsstofa og systurstofa hennar í Svíþjóð, Business Sweden, hafa gert með sér samkomulag sem tryggir íslenskum fyrirtækjum aðgang að alþjóðlegu neti viðskiptafulltrúa Business Sweden. Samkomulagið tekur formlega gildi í sumar og má reikna með að fyrstu íslensku fyrirtækin geti notið góðs af þessu samstarfi þegar í haust. Frá þessu var greint á ársfundi Íslandsstofu sem stendur nú yfir.

Í fréttatilkynningu segir að viðskiptafulltrúar utanríkisþjónustunnar hafa til þessa veitt íslenskum fyrirtækjum margháttaða þjónustu og greitt götu þeirra í útlöndum en þeir eru til staðar á tólf erlendum mörkuðum. Nú bætist verulega við þann hóp en alls eru 450 starfsmenn á vegum Business Sweden í 42 löndum víða um heim.

Hlutverk þeirra er að styðja við framgang sænskra fyrirtækja erlendis með ýmis konar þjónustu á markaði. Með samkomulaginu verður íslenskum fyrirtækjum gert kleift að nýta sér tiltekna þjónustu eins og um sænsk fyrirtæki væri að ræða.

„Sem ráðherra utanríkisviðskipta og norrænnar samvinnu, hef ég mikla trú á gildi þess að styrkja samstarf Norðurlandanna og kynningarstarf útflutningsgreina á alþjóðlegum mörkuðum. Samstarf Íslandsstofu og Business Sweden er gott dæmi um það,“ sagði Anne Hallberg , ráðherra utanríkisviðskipta í Svíþjóð í ávarpi á ársfundinum. „Það er mikilvægt að við vinnum náið saman að því að styrkja ímynd Norðurlandanna á heimsvísu. Sterk ímynd hjálpar bæði norrænum fyrirtækjum og gerir Norðurlöndin áhugaverðari valkost fyrir erlenda fjárfesta.“

Guðlaugur Þór Þórðarson , utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók undir þau orð: „Við eigum sameiginlega viðskiptahagsmuni með Norðurlöndum enda eru þar tækifæri til að nýta sameiginlega styrkleika til árangurs fyrir öll ríkin. Við höfum átt mjög gott samstarf við Svía á sviði utanríkisviðskipta um langt skeið. Rætur þessa samkomulags liggja í samstarfi Norðurlandanna um rekstur nýsköpunarhúsa í Bandaríkjunum, sem er annað skínandi dæmi um kosti norræns samstarfs. Sameinuð erum við öflugri.“

Auk þess að opna dyr fyrir íslensk fyrirtæki út í heim felst einnig í samkomulaginu að stofurnar munu vinna saman í markaðs- og kynningarmálum í sértækum verkefnum þar sem þau eigi sameiginlegra hagsmuna að gæta.

„Þetta samkomulag skapar nýja möguleika fyrir íslensk fyrirtæki til þess að hasla sér völl á erlendis. Sú aðstoð sem þeim býðst getur stytt leið þeirra á markað og auðvelda þeim að koma undir sig fótunum í ókunnu umhverfi,“ sagði Pétur Þ. Óskarsson , framkvæmdastjóri Íslandsstofu.

Frederik Fexe , framkvæmdastjóri Business Sweden, sagði að nú séu kjöraðstæður til að hleypa af stokkunum þessu samstarfi til að styðja við sölu íslenskra fyrirtækja á erlendum mörkuðum. Markaðir séu að opnast á ný og því munu fyrirtæki finna sig í nýju viðskiptalandslagi eftir heimsfaraldur.

„Við sjáum talsverð tækifæri í því að opna þessa þjónustu fyrir íslensk fyrirtæki. Það rennir frekari stoðum undir starfsemi okkar og gefur okkur tækifæri til að fást við ný verkefni sem styrkir okkur til lengri tíma litið. Við hlökkum einnig til að sjá hvaða frekari tækifæri þetta kann að opna fyrir samvinnu íslenskra og sænskra fyrirtækja,“ sagði Fexe.