Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra afhenti í dag forsvarsmönnum „Heilsu og trúar“ hvatningarverðlaun í heilsuferðaþjónustu en verkefnið felst í að bjóða heilsuferðir fyrir trúaða Bandaríkjamenn þar sem hver hluti verkefnisins er nátengdur heilbrigði og trú með sterkri tilvísun í íslenska náttúru og menningu.

Til hvatningarverðlauna í heilsuferðaþjónustu var stofnað að frumkvæði iðnaðarráðherra til að fylgja eftir stofnun samtaka um heilsu- og lífsstílstengda ferðaþjónustu. Í tilkynningu segir að margar þjóðir hafi náð miklum árangri á þessu sviðið og að fólk fari langan veg til að sækja sér slíka þjónustu og upplifanir. Erlendar rannsóknir bendi þess til að ferðamönnum sem sameina heilsueflingu og ferðalög fjölgi um 18% á heimsvísu árlega og stór hluti þeirra er frá helstu markaðssvæðum Íslands.

Að verkefninu „Heilsa og trú“ standa Heilsuhótel Íslands, dr. Haukur Ingi Jónasson, Icelandair, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Nordic eMarketing og Team Works/David Jack.