Útsvarið í Mosfellsbæ lækkar úr 14,52% í 14,48% í kjölfar samþykktar bæjarstjórnar í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar bæjarins. Lækkar fasteignaskattur einnig, og fer hann úr 0,265% í 0,253%, sem og vatnsgjaldið lækkar.

„Lagt er til að álagningarhlutföll fasteignagjalda lækki til að koma til móts við þá auknu eignarmyndun sem átt hefur sér stað hjá íbúum með hækkun fasteignamats. Almennt er ekki gert ráð fyrir gjaldskrárhækkunum, t.a.m verða leikskólagjöld óbreytt annað árið í röð,“ segir í fréttatilkynningu frá bænum.

„Fjárhagsleg staða Mosfellsbæjar er traust og reksturinn góður. Í fjárhagsáætlun gert ráð fyrir aukinni þjónustu til barnafjölskyldna en lækkun skatta og gjalda skilar sér til allra greiðenda í sveitarfélaginu.  Gert er ráð fyrir að skuldaviðmið, sem sett er í sveitarstjórnarlögum, verði  105,8% af tekjum í lok næsta árs.“