Hlutabréfavísitölur í Evrópu lækkuðu í dag m.a. vegna áframhaldandi neikvæðra frétta af stöðu mála á Spáni. Þá hafði það líka áhrif að matsfyrirtækið Moody's breytti horfum á AAA einkunn þýska ríkisins í neikvæðar og eru horfur á einkunni Hollands og Lúxemborgar einnig neikvæðar að mati fyrirtækisins.
Telur Moody's að þessi þrjú ríki munu þurfa að bera mikinn hluta kostnaðar við að verja evruna sem og kostnað vegna frekari aðstoðar við Grikkland og hugsanlega fleiri evrópuríki. Matsfyrirtækið sagði einnig að auknar líkur væru á því að Spánn þyrfti á utanaðkomandi fjárhagsaðstoð að halda.
Breska FTSE vísitalan lækkaði um 0,63% í dag, þýska DAX vísitalan um 0,45% og franska CAC um 0,87%. Spænska IBEX vísitalan lækkaði hins vegar um ein 3,58%.