Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,71% í dag og endaði vísitalan í 1.173,77 stigum. Gengi bréfa TM lækkaði um 1,47%, Fjarskipta um 1,35% og VÍS um 1,29%. Gengi bréfa Össurar hækkaði um 1,18% en önnur félög lækkuðu eða stóðu í stað. Velta á hlutabréfamarkaði nam 409,7 milljónum króna í dag.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,07% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,09% og sá óverðtryggði um 0,04%. Velta í viðskiptum með skuldabréf í vísitölunni nam 5,9 milljörðum króna og voru nær öll viðskiptin með verðtryggð bréf, eða sem nam 5,7 milljörðum.