9,92 milljarða velta var á Kauphöllinni í dag en þar af var 8,4 milljarða velta á viðskiptum með skuldabréf og 1,5 milljarða velta með hlutabréf.

Mest lækkaði gengi bréfa í Högum um 2,33% og í Nýherja um 2,2%. Aðeins hækkaði gengi tveggja félaga í dag en Reginn hækkaði um 1,97% og HB Grandi um 1,52%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,08% í dag og stendur lokagildi hennar í 1.343,63.