Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 2,16% í dag og endaði í 1,750 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 6,89% frá áramótum.

Mest lækkaði gengi bréfa Marel um 3,86% í 658 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Marel er þá 224 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 1,77% í 978 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 33,3 krónur. Einnig lækkaði gengi Eimskips um 1,95% í 261 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 226,5 krónur.

Ekki varð nein hækkun á gengi hlutabréfa í dag. Lækkunin stafar líklega af ástandi heimsmarkaðs hlutabréfa, en miklar lækkanir í Asíu hafa haft veruleg áhrif á bandarísk og evrópsk hlutabréf. Aukreitis hefur hráolíuverð farið stöðugt lækkandi, og er nú komið undir 28 dali á tunnuna.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæpir 2,8 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3,4 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 2,1% í dag í 2,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 3 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 1,3 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 1,8 milljarða króna viðskiptum.