Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,29% í tiltölulega litlum viðskiptum í dag. Gengi bréfa Haga hækkaði um 0,77%, TM um 0,18% og Icelandair um 0,15%. Gengi bréfa VÍS lækkaði um 1,07%, Fjarskipta um 0,97% og Eimskips um 0,73%. Velta á hlutabréfamarkaði í dag nam 150,2 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,06% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,07% og sá óverðtryggði um 0,06%. Velta í viðskiptum með skuldabréf í vísitölunni nam 3,6 milljörðum króna.