Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,58% í dag og endaði í 1.177,85 stigum. Gengi bréfa Nýherja hækkaði um 4,57%, reyndar í litlum viðskiptum, bréf VÍS hækkuðu um 3,55% og bréf Icelandair hækkuðu um 0,47%.

Bréf Össurar lækkuðu hins vegar um 1,64%, bréf Marels lækkuðu um 0,67% og bréf Regins um 0,37%. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 1,2 milljarði króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,28% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,34% og sá óverðtryggði um 0,13%. Heildarvelta með þau skuldabréf sem eru í vísitölunni nam 3,3 milljörðum króna.