Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,40% í dag og endaði í 1.173,14 stigum. Gengi bréfa Marels lækkaði um 1,36%, Regins um 0,90% og VÍS um 0,50%. Bréf Icelandair hækkaði um 0,54%, Eimskips um 0,19% og Haga um 0,17%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 591,8 milljónum króna í gær.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,13% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,16% og sá óverðtryggði um 0,06%. Heildarvelta á þeim skuldabréfum sem mælast í vísitölunni nam 3,4 milljörðum króna.