Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,58% í dag og endaði í 1.166,95 stigum. Gengi bréfa Regins hækkaði um 1,83%. Gengi bréfa Eimskips lækkaði um 1,76%, Icelandair um 0,76% og Haga um 0,58%. Önnur félög stóðu í stað eða lækkuðu í gær. Velta á hlutabréfamarkaði nam 665,9 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,21% í í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,25% og sá óverðtryggði um 0,10%. Velta í viðskiptum með skuldabréf í vísitölunni nam 4,2 milljörðum króna.