Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum lækkuðu verulega í kjölfar frétta af fundi Donald Trump forseta og rússneska sendherrans. Féllu þrjár helstu hlutabréfavísitölurnar á Wall Street um meira en 1% í dag.
S&P500 hlutabréfavísitalan féll um 1,31% og féll hún niður í 2.369,21 stig. Dow Jones vísitalan lækkaði um 1,34% niður í 20.698,99 stig og Nasdaq vísitalan féll um 1,77% niður í 6.060, 50 stig.
Ástæðan er talin vera aukin vantrú markaðarins á því að ríkisstjórn Donald Trump Bandaríkjaforseta geti náð í gegn lofuðum umbótum á skattkerfinu og því reglugerðarumhverfi sem markaðurinn býr við.
Deilur um samskipti við Rússland
Forsetinn stendur nú í ströngu því miklar deilur eru í bandarísku þjóðfélagi vegna þess annars vegar að hann rak James Comey úr stöðu sinni sem yfirmaður FBI, en hann hafði staðið fyrir rannsókn stofnunarinnar á meintum tengslum rússnesku leyniþjónustunnar við lekamál sem komu upp í kringum kosningabaráttuna fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.
Hafa jafnvel heyrst kröfur um afsögn Trump, í kjölfar ásakana um að hann hafi deilt of miklum leyniþjónustuupplýsingum með rússneskum stjórnvöldum.