Hlutabréf á markaði í Bandaríkjunum halda áfram að lækka í dag. Tengist lækkunin lækkun á olíuverðum - sem hefur lækkað um 2,5%.

Þetta kemur fram í fréttaskýringu Reuters um málið.

Dow Jones vísitalan lækkaði um 0,34% og S&P 500 vísitalan um 0,38%. Nasdaq vísitalan lækkaði einnig um 0,33% í Bandaríkjunum.