Nú þegar hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum hafa verið opnir í nokkrar mínútur hafa helstu hlutabréfavísitölur lækkað. Er það í samræmi við spár um framvirka samninga en spárnar gerðu ráð fyrir innan við 1% lækkun.

Dow Jones (DJIA) vísitalan hefur lækkað um 0,42%, Nasdaq vísitalan um 0,60% og S&P 500 um 0,52%.

Við lokun markaða á Wall Street í gær hafði Nasdaq hækkað um 3,32%, Dow Jones (DJIA) um 2,26%  og S&P 500 um 2,83%.