Alþingi hefur samþykkt bráðabirgðaákvæði sem kveða á um að iðgjöld atvinnurekenda og þeirra sem stunda sjálfstæða starfsemi og lífeyrissjóða til starfsendurhæfingarsjóðs skuli vera 0,10% af stofni til iðgjalds vegna áranna 2016 og 2017 í stað 0,13%. Þetta kemur fram í frétt á vef Samtaka atvinnulífsins. Breytingin kemur til framkvæmda nú um áramótin.

Í fréttinni segir að VIRK Starfsendurhæfingarsjóður hafði nýverið frumkvæði að því við fjármálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra að gjöld sem atvinnulífið greiðir til að fjármagna starfsendurhæfingu verði lækkuð tímabundið árin 2016 og 2017 auk þess að áætlað framlag ríkisins til VIRK árið 2016 verði lægra en fyrirhugað var. Ástæðan er m.a sú að fyrirséð er að fjölgun einstaklinga í þjónustu VIRK verði minni á næsta ári en áætlað var vegna þess að upptaka starfsgetumats í stað örorkumats frestast, en upptaka þess mun hafa í för með sér aukna þjónustu við þá sem tímabundið hafa horfið af vinnumarkaði vegna veikinda eða slysa.

Í fréttinni kemur fram að um sé að ræða tímabundna lækkun sem verður endurskoðuð þegar starfsgetumat verður tekið upp í stað örorkumats.