Gengi hlutabréfa Icelandair Group lækkaði um 1,39% í 304 milljóna króna veltu með bréfin í Kauphöllinni í dag. Þetta var langmesta veltan með hlutabréf á markaðnum. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Vodafone um 0,86%, Eimskips um 0,54%, Haga um 0,37% og Marel um 0,32%.

Gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins hækkaði um 0,37% í dag og var það eina hækkun dagsins.

Veltan var með minna móti, um 430 milljónir króna.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,35% og endaði hún í 1.214,96 stigum.