Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,41% í 1,7 milljarða viðskiptum dagsins. Endaði hún í 1.697,46 stigum.

Aðalvísitala skuldabréfa lækkaði um 0,12% í 8 milljarða viðskiptum og endaði hún í 1.227,64 stigum.

HB Grandi hækkaði

Eina hlutafélagið sem sá gengi hlutabréfa sinna hækka á mörkuðum dagsins var HB Grandi.

Hækkaði gengi bréfa þess um 2,62% í 177 milljón króna viðskiptum og fæst hvert bréf félagsins nú á 25,50 krónur.

Fjarskipti og Össur meðal þeirra sem lækkuðu

Gengi annarra hlutafélaga annað hvort lækkaði eilítið eða stóð í stað, en bréf í Fjarskiptum lækkaði um 1,79% í 122 milljón króna viðskiptum og fæst nú hvert bréf félagsins nú á 46,7 krónur.

Gengi bréfa í Össur hf. lækkaði um 5,41% í mjög litlum viðskiptum, sem námu 256 þúsund krónum. Fæst nú hvert bréf félagsins á 402,00 krónur.