Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag og svo virðist sem fjárfestar séu enn á nálum vegna vandræða Grikklands, Ítalíu og fleiri skuldugra ríkja innan Evrópusambandsins.

Þannig greinir Reuters fréttastofan frá því að þrátt fyrir að ný samsteypustjórn verði mynduð í Grikklandi horfi fjárfestar enn til þess að skuldamál ríkisins eru óleyst.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 0,4% og í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 0,5%.